argh veit ekki alveg hvort þetta sé nöldur en whatever, finnst þetta ógeðslega creepy!

ég var að tala við vinkonu mína á msn og hún sagði mér að einhver tyrki hafði addað henni inn á msn hjá sér og hann væri að spurja alskonar “spes” spurningar, hún addaði mér inn á samtalið og ég komst að því hversu mikill ógeðslegur perri þessi gaur var! og ekki bætti það hversu lélegur hann er í ensku! það sem hann tönglaðist á var: “send porn picture” og “send sex video” of creepy gaur! þannig að ég delete-aði honum af msn…og svo fór ég online á msn rétt áðan og þá hafði einhver gaur addað mér á msn hjá sér og það fyrsta sem hann sagði var: “hey baby, how about sex?”

argh ojj hvað það ætti að banna svona fólki að vera á netinu! finnst þetta OF creepy! og ef þetta sorglega manngerpi vogar sér að adda mér aftur inn á msn þá skipti ég um! það sérstaka finnst mér að vinkona mín er ekki búin að lenda í því að þessi gaur addi henni aftur inn á msn því hún delete-aði honum líka =/