Ég var nú ekki með neitt skítkast, þetta var nú bara pæling og ég tók meiraðsegja fram að ég væri ekki að reyna að vera leiðinlegt. En jæja, hafðu það eins og þú vilt.
Nei, það eru nú bara nokkrir mánuðir síðan þú spurðir hvort þú gætir orðið ólétt með munnmökum. Ég ætlaði ekkert að vera leiðinleg, var bara að spá hvort þú ætlaðir að búa börnin þín til þannig.
Ja, það er hægt að fá vítamín sem styrkir hárið og svoleiðis, þá slitnar það minna og verður síðara. Kíktu bara á vítamínrekkana í búðum og apótekum, það er yfirleitt merkt utaná hvað vítamínið gerir.
Ég er nú ekki mikið fyrir hauskúpur, þó ég eigi nú nokkrar flíkur frá Dead. Annars hef ég aldrei fallið fyrir svona tískubólum, kannski afþví ég bý út á landi og kemst ekki í fatabúðir nema í mesta lagi á 1-2 mánaða fresti. Maður getur líka yfirleitt séð mjög auðveldlega hvað er bara “tískubóla” og peningaeyðsla, og hvað á eftir að haldast í tísku í einhvern tíma.
Ég er hvergi staddur, en nær því að vera stödd. Verð ekki 18 fyrr en seinna í ár, svo ég verð að bíða í fjögur ár í viðbót. Framsóknarflokkurinn er nú skástur núna, en ég er líka hrifin af ýmsu á stefnuskrá Frjálslyndra, þó ég myndi varla kjósa þá.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..