Eins og flestir vita hafa hauskúpur verið í mikilli tísku en ég hef samt sem áður alltaf fílað þær.

Ég hef safnað að mér soldið af hauskúpu flíkum á stuttum tíma eins og klút, peysu, skóreimum og bolum hvort sem það var ómeðvitað eða meðvitað að fylgja tískustraumum.
Í raun var ég að fylgja tískunni þrátt fyrir að ég hafi notað þær áður og fundist flottar því t.d. eru klútarnir rosaleg tískubóla og spurning hvenær hún springur.
Mér finnst samt gaman af þessu vegna úrvals og ég mun sko ekki hætta að nota þetta eftir að bylgjunni líkur.

Hvernig finnst ykkur flottast að nota hauskúpur eða finnst ykkur það kannski bara alls ekki flott?
Hvað er ykkar álit á svona tískubólum?
www.myspace.com/amandarinan