Það að vera strangtrúaður og að vera hryðjuverkamaður þarf nú ekki endilega að fara saman eins og flestir ættu nú að átta sig á. Ég þekki mann frá Pakistan sem er strangtrúaður múslimi, hann snýr sér í austur 5x á dag til að biðja, sefur í klukkutíma a hverri nóttu en vakir svo bara og les Kóranninn… og allskonar svoleiðis. Þetta er án efa einhver heiðarlegasti maður sem ég þekki. Ég var að tala við hann um einmitt þetta, alhæfingar um það að múslimar séu hryðjuverkamenn. Honum fannst...