Ég var að taka eftir því að meiri hlutin sem sækir þetta áhugamál á ekki kærustu/kærasta. Það finnst mér skrýtuð á eitthvern hátt. En þetta er víst allt fólk í leit að hjálp til að ganga í augun á draumadísinni. En já mér leiðist og hef ekkert að gera, nýtt ár eftir 22tíma :P Þessi korkur hefur eiginlega engan tilgang nema að drepa tíma hjá mér:S En svo það hafi eitthvern tilgangi þá ætla ég segja ykkur frá minni fyrstu ást =)

Ég var mjög ungur svona 12/13 ára þegar var fyrst ástfanginn. Ég var og er mjög feiminn strákur svo ég átti mjög erfitt með að krækja mig í hana. En svo gekk tíminn og hún hafði meiri áhuga á mér og endaði það allt í að við byrjuðum saman. Ég man að áður en við byrjuðum saman þá fór ég út þegar hún var eitthvað utí í göngutúr með vini mínum og ég mátti ekki láta þau sjá mig. Veit ekki af hverju, ég var soddan kjáni bara. Svo þegar ég var að labba að gatnamótunum heyrði ég að þau voru að koma upp þau, svo ég hljóp eins hratt og ég gat heim og lagðist uppí rúmið mitt og fór að hlusta á rónlega tónlist. Veit ekki af hverju ég man þetta, en þetta hef ég alltaf munað. Já ekkert jafnast á við fyrstu ástina, sem er án efa ein þeim sterkustu.

Núna á ég sjálfur enga kærustu og hef ekki átt síðan ég var með minni fyrsti. Guess I'm looking for the right one. En já please shareið skemmtilegum atvikum áður en þið byrjuðuð með fyrsti ástinni og sorry allt bullið í mér. Þið skilduð væntanlega bara 2/7 af þessum kork :)