Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Leikfangið (10 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum
Lítil saga sem ég gerði úr hugmynd sem mér dreymdi. Gerði hana á svona klukkutíma, þannig að kannski er hún ekki sú vandaðasta, en samt. Öll svör vel þegin ;D Konan gekk hægum skrefum niður heimreiðina. Hún stoppaði við póstkassann, en þar var enginn póstur. Ekki það að henni kæmi það eitthvað á óvart. Hún fékk aldrei póst. ,, Sæl Guðríður ” segir eldri kona sem hún hittir á leiðina í kjörbúðina. Þetta er góðlátleg kona, Guðríður tekur undir kveðjuna og brosir fallega. Kjörbúðin er til húsa...

Erna (7 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 1 mánuði
Þetta er smásaga sem ég samdi fyrir íslensku einhverntíman. Fékk 9,5 ;D Vona að ykkur líki hún og endilega segja ykkar álit! ;D Elsku Erna, þú veist ekki hvað ég gæfi mikið til þess eins að eiga annan dag með þér. Þessi tími sem við áttum saman var allt of stuttur, ég vildi vera með þér til æviloka. Ég veit að þér á eftir að líða vel þarna uppi, en ég mun alltaf sakna þín. Þú hvarfst allt of fljótt og skildir eftir stórt sár í hjarta mínu. Þú veist að ég verð þinn að eilífu. Þegar ég les...

Eftirsjá - endanlega sagan (3 álit)

í Smásögur fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Þetta er lokaútgáfa, sú sem ég skilaði kennaranum, endilega lesa og segja hvað ykkur finnst! Eftirsjá ,,Mamma”, kalla ég fram á gang. ,, Viltu hjálpa mér úr rúminu? “ ,,Já ég kem rétt strax, Birgir” Mamma kemur inn og hjálpar mér í hjólastólinn, já það er rétt ég er í hjólastól aðeins sextán ára gamall. Ég fer á minn uppáhaldsstað, fyrir framan stóra gluggann í stofunni.Glugginn byrjar á gólfinu og nær mjög hátt upp í loftið. Næstum eins og heill, gegnsær veggur. Þetta er staður sem ég get...

Eftirsjá (3 álit)

í Smásögur fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Þetta er nú bara byrjunin en ég er eiginlega alveg stopp veit ekki hvað á að koma næst :S En endilega segja hvernig ykkur finnst og hvað mætti koma næst. ,,Mamma”, kalla ég fram á gang. ,, Viltu hjálpa mér úr rúminu? “ ,,Já ég kem rétt strax, Birgir” Mamma kemur inn og hjálpar mér í hjólastólinn, já það er rétt ég er í hjólastól aðeins sextán ára gamall. Ég fer á minn vanalega stað, það er stór gluggi í stofunni okkar þar sem útsýnið er gífurlegt. Þetta er staður sem ég get verið hjá tímunum...

Munaðarleysinginn (2 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Ég leit á hana. Hún var dáin. Friðsælt andlitið endurspeglaði umhyggju og ást. Ég horfði í síðasta sinn á móður mína þar sem hún lá í rúminu. Ég var búin að búa mig undir dauða hennar. Hún var með ólæknandi sjúkdóm og búið var að spá því að hún myndi deyja bráðlega. Ég grét og tárin láku niður vanga minn. Ég var orðin munaðarlaus. Ég heiti Ásthildur Elín og er 12 ára gömul. Pabbi minn var sjómaður en hann fórst þegar skipið hans sökk. Mamma vann fyrir okkur sem saumakona. Þá greindist hún...

Fótbolti (9 álit)

í Húmor fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Peta hafði fengið nóg af þráhyggju Björgvins á fótbolta. ,,fótbolti, fótbolti, fótbolti!“ tuðaði hún ”það er það eina sem þú getur talað um. Það er allt þitt líf. Þú býður mér aldrei út. Gefur mér aldrei gjafir. Þú ert annað hvort á leik, eða horfandi á leik í sjónvarpinu. Ég þori að veðja að þú vitir ekki einu sinni hvenær brúðkaupsdagurinn okkar er.“ ,,Víst man ég það” svaraði Björgvin ,,það var sama dag og Real Madrid vann Manchester United í Meistaradeildinni“ Maður fór á fótboltaleik á...

Dýr (4 álit)

í Gæludýr fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Hér á eftir skrifa ég sumt um helstu dýrin!! Kettirnir Kettir eru skrýtin dýr þar sem þau geta verið stór (Tígrisdýrið er stærst kattardýra) og líka lítil (húskötturinn er minnstur) Ég þekki fjórar ættir katta: Felis, panthera, neofelis og acinonyx. Á þessari síðu segi ég frá köttum stórum, meðalháum og litlum. Ég vona að þið hafið gaman af. auk þess hef ég stuttar geinar um ketti. Hundar Blendingar geta verið fallegir og skemmtilegir félagar. Með því að skoða foreldrana getur þú nokkurn...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok