Ég sé ekki alveg hverju það breytir að láta áhugamálið heita squeenix ef það er ætlað fyrir alla jrpg, það er ekkert minna vítt þó það heiti eitthvað annað. Þar fyrir utan sé ég ekki af hverju jrpg er of vítt þegar áhugamál eins og /crpg (sem tæknilega séð inniheldur þetta áhugamál líka) er að gefa upp öndina. En mér er svo sem sama hvað áhugamálið heitir. Svo framarlega að það sé jrpg áhugamál þá má það heita /barbie fyrir mér, „a rose by any other name…“