Vei! ég veit, við fáum aldrei nóg af þessu.

Hinsvegar má sjá á könnun að þetta er afar jafnt hvað varðar breytingartillögur á áhugamálinu (fyrir þá sem ekki vita, gera það að Square-Enix áhugamálinu, JRPG áhugamáli, bara breyta banner og/eða litaþema eða engar breytingar) og því er í raun lang best að skapa frekari umræðu hér á áhugamálinu hvað þetta varðar í þeim tilgangi að allir séu sáttir.

Ef þið viljið (fagmannlegt:P:P:P:P:P:P) ráð stjórnanda hér á áhugamáli þessu, þá erum við sammála um það að við værum helst til í að breyta því yfir í Square-Enix áhugamálið, (hafa urlið þá www.hugi.is/squeenix) ásamt því að breyta banneri og hugsanlega litaþema eftir vinningsbannerinum.

Ef þú hefur einhverjar enn betri tillögur þá skaltu alls ekki hika við að skrifa þær hér. Allar uppástungur vel þegnar.

Þakkir.