Einhvers staðar heyrði ég að hann hefði þann háttinn á að hann sendi ekki kaflana frá sér fyrr en honum fyndist þeir tilbúnir. Þannig að ef mikið er um flott artwork, stórar og flottar myndir þá tekur það hann lengri tíma að klára þá. Persónulega er ég sáttari við að fá kaflana þegar þeir eru tilbúnir en ekki þegar hann þarf að skila þeim af sér.
Riddaraþátturinn heitir King Arthur and the knights of justice King Arthur and the knights of justice á youtube og steinursaþátturinn heitir Gargoyles Gargoyles á youtube
Þetta er spurning sem á frekar heima á /spunaspil. Annars er LARP = live action role-playing. Sem er eins og nafnið bendir til tegund af spunaspili þar sem þátttakendur sjálfir leika persónurnar og bardagana. Þú getur fengið frekari upplýsingar um þetta á wikipedia
Hann er ekki kominn út og eins og er hefur bara verið gefið út að hann verði gefinn út á xbox 360, en mér þykir ekki ólíklegt að hann verði gefinn út fyrir PC líka. Hérna eru frekari upplýsingar um útgáfudag (TBA) http://www.gamespot.com/xbox360/rpg/fable2/similar.html?mode=versions&om_act=convert&om_clk=gssummary&tag=summary;versions
Þú þarft að hækka physique um 5, health um 2 og toughness um 3 miðað við þegar þú reyndir það fyrst samkvæmt gamefaqs.com, sem ég myndi líka mæla með að þú myndir skoða næst þegar þú hefur spurningu um einhvern leik.
Ég fór inn í ormsson búðina í smáralindinni um daginn, stuttu eftir að DS lite kom til íslands. Þar var eina merki þess að DS lite væri nýkomin út það að það var svoleiðis vél sem hægt var að prófa að spila new super mario bros, ég ætlaði að skoða verð á gamecube, þar var engin gamecube vél, nema ein sem var til sýnis, tengd við sjónvarp sem ekki var í gangi og var ekki verðmerkt.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..