XFM kynnir: Global Battle of the Bands! Keppnin verður haldin dagana 15. - 24. nóvember í Hellinum, tónleikasal Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar (TÞM) við Hólmaslóð 2 í Reykjavík. Keppnin er árlegur viðburður og hefur verið haldin síðustu tvö árin með góðum árangri. Íslensku hljómsveitirnar Lights on the Highway og Finnegan, sem báru sigur úr bítum hérlendis árin 2004 og 2005, hafa hlotið verðskuldaða athygli í kjölfar þátttökunnar. Keppt verður fjögur kvöld, 15., 16., 22. og 23. nóvember og...