Það að það sé hægt að klambra saman hugbúnaði með einungis forritun en engri greiningu byggi ég á þessu; Ég settist eitt sinn fyrir framan tölvuna eftir að hafa skellt inn Delphi og langaði að prófa það, ég vissi ekkert hvað ég ætlaði að gera svo ég byrjaði bara að fikta án takmarks. Nokkrum tímum seinna var ég kominn með forritsræfil sem bjó til parsónu fyrir AD&D eftir skilgreiningum notanda. Nothæft forrit. Ok, ljót, illa kóðað og já, frekar tilgangslítið, en nothæft forrit engu að síður....