Mér finnst það stórmagnað að þú skulir trjóna þarna úti og líða svona? Ertu kannski að koma heim? Er það það sem hægt er að lesa á milli línana hjá þér?
Þetta gæti alveg meikað sens. En ég held mig við mína kenningu eins og stendur. Sérstaklega þegar maður horfir á gamla kinverja þá eru þeir ekki með gleraugu. En þeir sem eru á þeim aldri að þegar þessi “skólapressa” byrjaði eru með gleraugu og flest allir yngri en þeir.
Mér finnst bara skrítið að gamlir kínverjar (og bara eldra fólk) er sjaldnast með gleraugu. Þetta með asnalegu augnlokinn… eru þá ekki allir asíubúar með sjónskekkju? Ég held mér við mína kenningu. Ekkert betra í heiminum heldur en skoðannaskipti :)
Kennslutæknin er öðruvísi heldur en hér. Hérna lærum við að draga úr aðalatriðin og erum ekkert mikið að pæla í hinu. Þau lesa heilu og hálfu bækurnar og þurfa kannski að muna örfá atriði. Allavega sagði Franskur Enskukennari mér þetta þarna (Frakki sem var að kenna ensku)
Já það er í rauninni rétt. En svo þegar ég fór að spyrja kínverjana útí þetta þá var svarið að þetta væri allstaðar svona. Einnig þegar ég spurði aðra krakka í öðrum borgum.
Ok. Ég játa að þetta er mjööög svipað og litlu börnin í Afríku. Nema mér er skítsama nokkurvegin hvort þið farið í skólan. Ég er ekki að segja þetta af sömu ástæðu og mamma í gamla daga.
Ég er ekki að segja að þið EIGIÐ að líka betur við skólakerfið. Ég veit bara að ég var ógeðslega pist oft útí skólakerfið hérna þanngað til að ég kynntist öðru. Er meira að segja að við ættum að vera þakklátari við það hvað við höfum það gott. Er að reyna að gefa innsýn inní kínverskt líf á unglingsárum.
Eru þá kínverjar eina þjóðin sem er með svona mikla sjónskekkju? Og eykst fjöldi barna sem fæðast með sjónskekkju jafnt og þétt við meira álag í námi… Bara svona pæling. Ég fékk mínar upplýsingar frá Kínverjum og finnst þær hljóma rökréttar. En svo gæti hitt alveg verið rétt… finnst það bara skrítnara.
Þau ráða náttúrulega engu. Krakkarnir þekkja ekkert annað og því er ekkert skrítið að þau sakni venjulegs lífs eins og við eigum. Svo er þetta skiljanlegt. Ef þú vilt komast í háskóla þá verður þú bara að læra og læra og læra. Eina lausnin á þessu að mínu mati væru fleiri góðir háskólar.
Takktakk. Ég sé sjálf ekki áróðurinn… Gæturu útskýrt bara svona forvitni. Annars er ég bara svo sjokkeruð þessa dagana. Get ekki beðið að komast í Íslenskan skóla.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..