Fáðu þér bara eitthvað að borða, ég er með mjög lélegan blóðsykur og verð að borða reglulega. Það kemur stundum fyrir að ég fer í svona sjokk eins og t.d. þegar ég svaf einu sinni yfir mig og hljóp beint út í strætó án þess að borða morgunmat að það leið næstum því yfir mig í strætónum. Annað sem gerðist var að ég hafði borðað lítið einn daginn og fór svo í bláa lónið, þegar ég kom úr sturtunni sortnað mér allt í einu fyrir augum og ég skall í flísarnar. En já, borða reglulega og þá færðu þetta ekki.