Lítill fugl á mosa þúfu Syngur og leikur, Fjallið hlustar á angurværa tóna hans. Hann syngur inn í hjörtu manna, dýra og annara fugla. En fuglinn gleymist í eilífð molnar í skugga tímans. Ámátlegt vein heyrist í fjarska. Kannski, er þetta kvöldsólin sem hristir rauða lokka sína, yfir spegilsléttan sjóinn. Eða kannski, er þetta kall hins einmana manns sem týndi öllu sem hann elskaði og gleymdi. Gleymdi að lifa…