Ég vil byrja á því að segja að mér fannst þetta ljóð vera mjög gott. Það snart mig djúpt og ég varð hálf klökk þegar ég las það. En í sambandi við þessar sjálfsmorðshugleiðingar þá get ég ekki neitað því að mér finnst oft vera mikil eigingirni á bak við slíkan verknað. Ég er þó alls ekki að segja að öll sjálfsmorð séu framin af eigingirni eða sjálfselsku, því ég get auðvitað ekki vitað hvað er að gerast inni í hausnum á þessu fólki. En ég veit um tvö dæmi þess að fólk hefur framið sjálfsmorð...