Ef þú ert '93 þýðir að þú sért í áttunda bekk. Gera má ráð fyrir að þú þekkir kannski einhverja einu eða tveimur árum eldri en þú ert sjálf. Engu að síður, að krakkar í 8, 9 og 10 bekk séu byrjuð að dópa, reykja og drekka alla vikuna er bara eitthvað sem ég hef aldrei vitað um. Auðvitað er alltaf einn og einn sem fer að fikta snemma og er kannski bara kominn útí algjöra vitleysu kannski í 9 eða 10 bekk en að þetta sé stór hópur af fólki kemur mér hrikalega á óvart. Hélt að Ísland væri betra en þetta.