Mig langar að deila með ykkur smá sögu um svefnrofalömun ;) Þetta byrjaði allt saman fyrir um 4 árum. Þegar ég var að reyna sofna á kvöldin og var búin að liggja upp í rúmi í kannski tíu mínútur, þá uppgötvaði ég að ég gat hvorki hreyft legg né lið. Ég gat heldur ekki talað og en ég gat hugsað þ.e.a.s. ég var alveg meðvituð um umhverfið mitt, ég vissi að ég lægi í rúminu mínu og ég gat stjórnað hugsununni (þannig að mig var ekki að dreyma). Þetta lýsti sér eignlega eins og heilinn væri...