Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

magnubj
magnubj Notandi frá fornöld 0 stig

Re: Á maður að þora að fara aftur inná server?

í Battlefield fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Komdu bara aftur og ekki láta þetta hræða þig. Það eru bara sumir sem halda að þeir séu guðir, kalla þá sem gera mistök nooba eða fu**ing cs spilara og vilja henda mönnum út fyrir minnstu mistök. R-conarnir eru í flestum tilfellum (ekki alltaf samt) nógu skynsamir til að meta það hvort viðkomandi eig skilið spark eða ekki kv gamlingi

Re: Uppsetning servers. (BF Server manager out)

í Battlefield fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Hef ekki heldur orðið var við meira lagg en vanalega þó að það hafi verið slatti inni á servernum. Mér finnst líka lang skemmtilegast þegar nóg er af fólki. Öðru er ég að mestu sammála. Slökkva á myndavélinni sem sýnir morðingjann (hundleiðinlegt fyrir þá sem eru að laumupúkast eins og snipera) en það ætti samt að vera áfram slökkt á freecam, af sömu ástæðu. Mér finnst það ekki leiðinlegt að sami sniperinn drepur mig 4-5 sinnum áður en mér tekst að finna hann. Eins finnst mér sjálfum ekki...

Re: Artillery

í Battlefield fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Var á simnet um daginn, Omaha. Var sjálfur staddur í aftari fallbyssu skipsins og kallaði hvað eftir annað eftir skotmarki. Skrifaði á endanum skilaboð þar sem ég bað skáta um að gefa mér skotmark og þá var ég beðinn um úskýringu á því hvernig þetta virkaði. Ég að sjálfsögðu útskýrði þetta allt og það sem eftir var raoundsins var stöðugt verið að biðja um stórskotahríð, ekki bara einn heldur allir skátarnir voru duglegir við þetta. Þarna voru augljóslega bara nýliðar sem skátar (noobar eins...

Re: Battlefield menninginn er horfin!!!

í Battlefield fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Það verður bara að sýna smá þolinmæði held ég, þetta gengur yfir þó að þetta sé mjög pirrandi. Við hinir verðum bara að segja nýliðunum til og benda þeim á að þetta er ekki vel liðið. Varðandi backfire þá er ég ekki mjög hlynntur þessu. Ef maður slysast til að skjóta á liðsfélaga og drepa hann sem kemur fyrir okkur alla þá drepst maður sjálfur í staðinn (ef ég skil þetta rétt). Menn gætu t.d. farið að hlaupa fyrir grensurnar hjá manni í staðinn fyrir að vera að tk. Var að spila á erlendum...

Re: Á að setja reglur?

í Battlefield fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það eru víst til reglur um hvað má og hvað má ekki í stríði. Má þar nefna Genfar-sáttmálann sem dæmi um slíkar reglur. Það eru ekki bara reglur um meðferð stríðsfanga (sem Bandaríkjamenn brjóta eins og þeir geta á Kúbu núna) heldur eru reglur um hvaða vopn má nota, t.d. um byssukúlur en þær eiga að vera með hörðum oddi og bannað er að nota svokallaðar dúmm-dúmm kúlur. Það er bannað að skjóta á sjúkramenn og sjúkramenn eiga að vera hlutlausir, hjálpa öllum. Sjúkramenn mega ekki bera vopn (sem...

Re: Hvað er eiginlega verið að læsa þráðnum!?

í Battlefield fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég verð að segja að mér finnst mjög skrítið að ritskoða umræðuna um HAX á þennan hátt, með því að læsa þræðinum, verður næst að enginn þráður sem inniheldur orðið HAX komist hér að? Ég hef stundum velt því fyrir mér hvort að menn séu að nota hax á simnet, menn eru stundumótrúlega hittnir, þola fáránlega mörg skot eða virðast vera með augu í hnakkanum. Kann ekki nóg til að sjá hvort þetta sé hax eða hvort mennirnir séu svona góðir eða heppnir. Hef að vísu einu sinni sjálfur verið sakaður um...

Re: 1.5 simnet

í Battlefield fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Gat ekki stillt mig um að kíkja á þetta, fékk vírusviðvörun samstundis, einhver java-fjandi sem vírusvörnin stoppaði. Fékk ekki endalaust upp síður með brosköllum, hvort sem það er vírusvörninni að þakka eða Opera-vafranam :) kv gamlingi

Re: SIMNET !!

í Battlefield fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Eftir að hafa lesið allt um vandræðin af plástri 1.45 var ég að vona að simnet yrði áfram 1.4 en nei, svo var…… Maður verður semsagt að fara að slást við þessi vandamál sem allir hafa verið að kvarta yfir, maður ætti kanski að byrja strax á uninstall/install ferlinu :( gamlingi

Re: DACSAS public lanið: Á Desert Combat rétt á sér?

í Battlefield fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Segið mér annars, SW - er það aukapakki eins og RTR eða sjálfstæður leikur? kv [The Lost] Gamlingi

Re: Recruiting tactics....

í Battlefield fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég er búinn að spila þennan leik lengi á netinu og undir sama nickinu nær allan tímann. Ég hef aldrei reynt að komast í clan og verð að segja að ég var bara nokkuð upp með mér að vera boðið að ganga í eitt slíkt. Gat ekki séð að það væri nein skipulögð nýliðasöfnun í gangi nema að annað clan byrjaði að bjóða mönnum að ganga í hópinn strax á eftir. Þegar ég skoðaði meðlimi nýja clansins míns komst ég að því að nickið mitt stendur vel undir nafni, ég er lang elstur…… :) kveðja Gamlingi

Re: Battle of Britain - flugvélarnar

í Battlefield fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Nú er orðið mjög langt síðan ég hef lesið staf á þessu sviði þannig að ég gæti verið að bulla tóma steypu….. En ef ég man rétt þá voru fyrstu þoturnar aðeins góðar að einu leiti, þær voru miklu hraðskreiðari en flugvélar bandamanna. Þoturnar voru alls ekki liprar í loftinu og misstu niður hraðann við skarpar stefnubreytingar. Vegna þessa voru þær auðveld bráð ef flugmönnunum þeirra varð það á að breyta stefnu skyndilega. Þeirra helsta vopn var semsagt hraðinn, þeir gátu náð flugvélum...

Re: All seing aye

í Battlefield fyrir 22 árum, 10 mánuðum
ok, gott að ég var að misskilja þetta. Eru ekki allir BF spilarar annars með gamespy? kv Gamlingi

Re: All seing aye

í Battlefield fyrir 22 árum, 10 mánuðum
All seeing eye? Nú þekki ég þetta ekki. Þetta hljómar eins og að með þessu getir þú séð hvar allir eru staddir á kortinu eða að þú sjáir í gegn um veggi og þoku. Ef svo er þá er þetta svindl í mínum augum (og gæti skýrt hæfileika sumra í þessum leik). Hef sjálfur spilað leikinn heiðarlega, án slíkra hjálpartækja. En kanski er ég að misskilja þetta eitthvað. kv Gamlingi

Re: Bensínfótur Juan Pablo Montoya

í Formúla 1 fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nú þekki ég ekki hvort að það séu enn hraðbrautir þar sem hámarkshraði er ótakmarkaður, en ef svo er þá fer þem óðum fækkandi. Jú, mörg verstu og fjölmennustu slysin verða í þoku og rigningu en þau verða líka við bestu aðstæður. Hef sjálfur farið fram hjá brotajárnshrúgunum á hraðbrautum Evrópu í sól og blíðu. Er búinn að heyra margar lýsingar frá fólki sem hefur keyrt fram hjá bílum sem eru gjörsamlega í henglum, skömmu eftir að sami bíll tók fram úr á ofsahraða við góðar aðstæður. Það er...

Re: Bensínfótur Juan Pablo Montoya

í Formúla 1 fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Beinn og þurr vegur eða ekki, hámarkshraði er 130 km/klst, mjög einfalt. Það skiftir ekki neinu máli hversu góður ökumaður þú ert eða á hvað góðum bíl þú ert. Setjum smá dæmi um það sem getur gerst við svona aðstæður. Þú ert að keyra eftir hraðbraut með 130 km hámarkshraða. Þú ert sjálfur á 150 km hraða og kemur aftan að bíl á 130. Þú skiftir um akrein þar sem langt er í næsta bíl sem þú sérð í speglinum. Þessi bíll sem þú sást var aftur á móti Montoya á 250 km hraða, þ.e. 100 km hraðar en...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok