Jæja, ég veit ekki alveg hvort ég eigi að senda þetta inná þennan kork eða nöldur korkinn, en ég var að spá hérna…


<b>Hvað var um samfélagið ?</b>

Ég ákvað að sitjast við tölvuna hjá vini mínum eftir að hafa ekki spilað BF í ca ár ef ekki meira. Ég fæ þarna jeppa og fer að keyra, ég er kominn ca 20 metra áfram þáhoppar gaur uppí jeppann með mér. Ég alveg gjörsamlega óvanur controls og öllu núna fer að keyra um á þessari beyglu og er kominn alveg að óvinastöðinni (eða alveg í næsta nágrenni) þá missi ég stjórn og keyri á kant á brú með þeim afleiðingum að ekki varð mikið eftir af bílnum né farþegum hans.

Síðan 10 sec seinna sé ég “ALLIR BANNA HANN TK'AÐI MIG VILJANDI”
og þá átti ég víst að hafa gerst svo lúmskur að connecta á server bara í þeim tilgangi að keyra jeppan á kant, meina hverjum finnst það ekki mun skemmtilegra en að plaffa flugvélar og snipe-a óvini ?

Eftir þetta ákvað ég bara að hætta, aftur. Svo ég spyr, er þetta normal hegðun og á maður að þora inná aftur ?

Jade reborn, and needs some lessons.<br><br>“Killing for Peace is like Fucking for Virginity”