Þetta var án efa klikkaðasta lífsreynslan mín, 15 ára bið eftir að sjá þá á Íslandi loksins á enda, enda búinn að hlusta á þá síðan 8 ára (1989) Ég mætti fyrir utan Egilshöllina um 12:20 og voru þá um 20-30 manns að bíða, hleypt var inn í höllina rétt rúmlega 17:00, og var ég með þeim fyrstu inn og komst fremst beint fyrir framan trommusettið, hitinn, troðningurinn, og súrefnisskorturinn var svo mikill að enginn orð fá því líst, meira en 20-30 manns voru dregnir hálfmeðvitundarlausir út yfir...