Forsala á miðum á risatónleika Metallica í Egilshöllinni 4.júlí hefst næstu helgi.

Forsalan verður með þeim hætti að þeir sem eiga miða á Placebo hafa forkaupsrétt á Metallica miðana.

Nánari upplýsingar um sölustaði, verð o.fl. verða birtar um miðja næstu viku.

Allur undirbúningur fyrir tónleikana er í fullum gangi og gengur ágætlega. Þessir tónleikar verða engu líkir og verða langstærstu tónleikar sem haldnir hafa verið á Íslandi. Bæði hljóð- og ljósakerfið verða stærstu kerfi sem sést hafa hérlendis.

Það verður ekkert aldurstakmark á tónleikana utan þess sem landslög kveða á um (útivistartími, fylgd með forráðamönnum o.s.frv.)

Ef frekari upplýsinga er óskað sendið póst á mig halldor@kvaran.is

Með bestu kveðju
RR ehf.

Halldór Kvaran & Ragnheiður Hanson