Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

mag22
mag22 Notandi síðan fyrir 22 árum, 9 mánuðum 4 stig

Re: Vandamál með samskipti

í Rómantík fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Það er tóm steypa að halda því fram að Asperger-heilkenni sé eitthvað sem orsakast af lélegu uppeldi. Ég ólst ekki upp neitt öðruvísi en aðrir. Þar fyrir utan, einkennist Asperger ekki “bara” af félagslegum erfiðleikum.

Re: Vandamál með samskipti

í Rómantík fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Þú ert að tala tóma steypu. Þeir sem hafa Asperger heilkenni hugsa einfaldlega öðruvísi en annað fólk, það á erfitt með tilfinningalega gagnkvæmi og að lesa félagslegar aðstæður rétt þar sem það býr ekki yfir sama félagslega innsæi sem venjulegt fólk fæðist með. Þetta kemur uppeldi bara ekkert við. Ertu að reyna segja mér að ég hafi þjást af ímyndunarveiki alla mína ævi.

Re: Vandamál með samskipti

í Rómantík fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Ég er greindur asperger. Það felur m.a. í sér að ég mig skortir félaglegt innsæi, þ.e. vita ekki “meðvitað” hvað maður á að segja og hvenær, hvað maður á að gera og hvernig annað fólk ætlist til að þú hegðir þér í “social situations” Einnig á ég erfitt með að skilja tilfinningar annarra og lesa líkamstjáningu. Það þýðir ekki að það sé ómögulegt að eignast vini, heldur er það “mjög” erfitt. Ég er ekki einfari að ég vill vera það.

Re: Asperger

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Ég verð nú að tjá mig um þetta, Ég er með Asperger-heilkenni og þó ég viðurkenni að ég hafi verið erfiður í skóla þá var það ekkert í líkingu við þennan strák. Asperger getur líka verið misalvarlegt, það sem hrjáir þá sem eru “best” settir er að okkur líður oft eins og dósaopnurum, þ.e.a.s. við eigum erfitt með að ná tilfinningalegum tengslum við fólk.
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok