Er ekki viss hvar þú færð þessa prósentutölu en já ég mundi giska á að ef þú mundir panta bara fyrir 1500kr (44 skammtar) mundiru þurfa að borga svona 3500kr fyrir allt (sending og tollur).
Haha:) jæja ég er nú ekki á öllu þessu í einu sko. Málið er að ég nota ekki brennsluefnin alltaf, aðeins þegar ég er að “cutta” og creatinið tek ég aðeins 4 vikur í senn.
Já eitthvað af þessu er að verða tómt. En ég er nátturlega nýbuinn að panta frá bb.com, sparar langtum mest á því að kaupa bara mikið og eiga það heldur en að vera að panta lítið í einu og eyða meira í sendingarkostnað. :)
Universal Pak er á ~24$ sem er samkvæmt genginu í dag ~1500kr og Universal Cuts er á ~30$ sem er samkvæmt genginu í dag ~1900kr Held það sé ekkert í þessu sem ætti að vera bannað hérlendis. Kreatínið þarna er bara 100% monohydrate sem er leyfilegt.
Já það bætist sendingarkostnaður og einhver smá tollur. Ég held að það sé hagstæðara að kaupa prótein á Íslandi ef þig vantar bara 1 dunk en ef þú ert að fara að gera einhver rosa innkaup er bb.com málið.
Ég vona að þetta með Cell-Tech hafi verið grín. Annars er pure monohydrate langtum best.. og hægt að fá 1kg af því á 20$ sem eru þá 1200kr íslenskar (ef miða má við gengið eins og það er í dag)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..