Ég skil þig alveg. Þetta er eins og þegar ég fór til Danmerkur og keypti mér Age of Mythology í einni búðinni. Svo þegar ég var að fara heim aftur vorum við að rölta um Kaupmannahöfn meðan við biðum eftir að lestin færi út á flugvöll, og ég ráfa þarna inn í sömu búð (þ.e. sömu verslanakeðju) og sé Age of Mythology með einhverjum rosa aukapakka, 100 ISK ódýrari en ég var að kaupa minn á, og ekki gat ég skilað honum og fengið hinn vegna þess að ég hafði tekið plastið utan af til að skoða...