Á fljótandi hásingu sér öxullinn aðeins um að snúa hjólinu, en á venjulegum hásingum (ófljótandi?) þarf hann líka að bera þyngd bílsins. Á fljótandi hásingum er s.s. hjólið fest við nafið, eins og að framan, en á venjulegum hásingum er hjólið fest beint á öxulinn. Þetta verður til þess að ef öxull brotnar í fljótandi hásingu þá helst dekkið á sínum stað, en á ófljótandi hásingu losnar það af (fylgir öxlinum).