Ég er að spá. Ég hef eitthvað verið að dunda mér á smá rellum með misjöfnum árangri, en samt vonandi gert þokkalega rétta hluti í sambandi við flugtak, aðflug og lendingar. Mig langar alveg svakalega að prófa netflug, en spurningin er hvort ég þurfi að hafa einhverja alvöru flugtíma á bakinu? Eða er maður boðinn velkominn og laumað að manni hintum? Einnig hvort ég þurfi nokkuð Deluxe útgáfu frekar en venjulega? Já og eitt annað, Fs9 eða FsX? eða alveg sama?