Eru menn farnir að spila? Sumir hafa eflaust verið að spila hann undanfarna daga þar sem að hann hefur verið fáanlegur á Steam um nokkurt skeið. Sjálfur, safnarinn sem ég er, verð ég alltaf að eignast hulstur og disk og rölti því upp í BT í dag.

Xbox 360 útgáfa leiksins kemur víst ekki fyrr en eftir helgi, en ég var hvort eð er á höttunum eftir PC útgáfunni og ákvað ég að kaupa Collector's Edition pakkann þar sem að Big Daddy fígúran lítur helvíti vel út.

Ég er búinn með einhverja 4 tíma og hef enn ekki tekið eftir þeim tæknilegu örðugleikum sem eiga víst að hrjá PC útgáfuna stundum, en við skulum bara bíða og sjá.

Einhver hér búinn að hefja leik í PC eða Xbox 360?