Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Hvað á Pizzan að heita? -samkeppni

í Matargerð fyrir 22 árum
Þetta er nákvæmlega það sama og ég fæ mér alltaf á pizzu, alveg sjúklega gott. Ég var eins og þú búin að gera margar tilraunir með álegg og þar sem ég er grænmetisæta var ekki úr of miklu að moða í þeim efnum. En þessi blanda er algjör snilld, gott að fá sæta bragðið af ananasnum og maísnum. Ég set stundum einhvern ost, piparost eða gráðost með og það er ekki síðra. Varðandi nafn á pizzuna dettur mér lítið í hug…Tropicalbrjálæði eða Megalomania (sem er fræðiheitið á mikilmennskubrjálæði,...

Re: Fitumæling

í Heilsa fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Þetta er framkvæmt á öllum helstu líkamsræktarstöðvum. Þú finnur ekkert fyrir klípunni, bara eins og þegar þú klípur þig með puttunum. Þetta er lang besta og nákvæmasta fitumæling sem þú færð. Mæli eindregið með því að þú látir mæla fituprósentuna, miklu betra en að fylgjast með vigtinni.

Re: Morgunmatur

í Heilsa fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Cheerios, Weetabix, Kornflex (venjulegt), Hafragrautur, Létt AB-mjólk, létt-jógúrt, skyr, ávextir, gróft brauð með fitulitlu áleggi eru allt góðir kostir ef þú ert að létta þig. Notaðu Fjörmjólk eða Undanrennu út á morgunkorn. Forðastu Special K og Fitness því það er mjög sykrað þó það sé fitulítið og því mjög hitaeiningaríkt.

Re: Börnin eru farin að fitna

í Heilsa fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ég er sammála þessu með kókdrykkjuna, hún er komin fram úr öllu hófi. Mér finnst ég ekki koma inn á það heimili sem ekki á kók í ísskápnum og mannni er alltaf boðið kók að drekka. Svo hváir liðið þegar maður biður frekar um vatn. Er það ekki drykkur dagsins? Ég hef ekki drukkið kók í 5 ár og sakna þess ekki neitt, finnst það eiginlega viðbjóður í dag, sykursull sem skemmir tennur.

Re: NASA...

í Djammið fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég fór á Nasa um síðustu helgi, þá var einmitt búið að opna upp. Það er voða flott þarna uppi og fínt að geta setið þar sem maður þarf ekki að garga til að tala saman. Hins vegar var ég ekki að fíla liðið sem var þarna inni. Allt of mikið af smástelpum og ljósabrúnum plebbum. Tónlistin var samt góð.

Re: á að bíða?

í Rómantík fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það er mjög eðlilegt að þessi mikla spenna og neisti sem einkenna sambönd í fyrstu dofni. Maður venst hinum aðilanum og fljótlega fer lífið að verða rútína og þar með talið kynlífið. Ef þið búið saman og eruð búin að vera saman í 3 ár þá ætti að vera einhver alvara í sambandinu og því finnst mér skrýtið að kærastinn þinn vilji ekki hugsa um framtíðarsamband núna. Ég held að þú ættir að ræða við hann og létta á hjarta þínu. Orð eru til alls fyrst. Ef þið eruð hamingjusöm saman þá er sambandið...

Re: hef aldrei verið í sambandi

í Rómantík fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég er sammála því að byrja ekki á að segja honum tilfinningar þínar. Það gæti bara hrætt hann. Reyndu frekar að hafa þetta á léttum nótum til að byrja með og spjalla bara við hann um eitthvað annað. Leyfðu hlutunum frekar að þróast út frá því, leyfðu honum líka að kynnast þér og meta þig út frá sínum eigin forsendum. Gott hjá þér að taka af skarið og senda honum sms. Þó hann svari þér ekki og ekkert gerist með þennan strák þá veistu allavega að þú reyndir, og ef hann svarar þér og hefur ekki...

Re: Einkaþjálfaranámskeið

í Heilsa fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Þú getur talað við þau hjá Planet stöðvunum, þau eru með FIA einkaþjálfaraskólann. Námið tekur held ég 3 mánuði og kostaði síðast þegar ég vissi um 100.000 kr. Svo er líka hægt að gera þetta í gegnum bréfaskóla hjá ISSA. Leitaðu bara að þeim á netinu, þar eru örugglega einhverjar upplýsingar. Gangi þér vel.
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok