Ástæðan er sú að fibonacci er trérakning. Það þýðir að sumar fibonacci tölur eru reiknaðar í fleiri enn einni grein. T.d. ef þú vilt finna fib(4) þá þarftu að finna bæði fib(3) og fib(2), en þegar þú byrjar síðan að reikna fib(3) þá þarftu líka að finna fib(2) þannig fib(2) er reiknað tvisvar. Skiptir yfirleitt litlu máli í dag en samt er gott í huga að stundum er betra að nota endurtekningar heldur en rakningu (eða hvað þið viljið kalla þetta).