Loksins er platan komin út, mixuð og tilbúin í bestu gæðum. Ég er þó búinn að vera að hlusta á HTTT (Hail To The Thief) síðan hún lak á netið, en eins og þið kannski vitið þá var það hálfgerðar demo útgáfur af plötunni. Ég mætti í Skífuna klukkan 23:59 á sunnudagskvöldinu til að næla mér í ferskt eintak af HTTT Special Edition. Spenntur, fór ég heim og opnaði þetta undurfallega eintak, og LOKSINS, loksins gáfu þeir út plötu með söngtextum síðan OK Computer. (Það var afskaplega pirrandi með...