Smá ljóð um gang lífsins. sólin fyllir upp í hvert einasta horn í dalnum blómin vilja leika sér og áin rennur glatt skuggi sem veifði sverði liggur loks í valnum ný menning er í vinnslu, og sinan brennur hratt lífið í dalnum er gott og góðir hlutar gróa þar til golan verður óþarflega sterk hörmungar gerast, sem engan hafði órað helvíti er laust.. og gerir sitt verk úrhelli rignir yfir dauða grundu var birta vegin af vetrinum þar til sólin rís aftur, á þessari stundu og smá rót úr blómi sprettur upp