var ekki að segja að þetta væri anime/manga, var bara að segja að mér finnst almennt allar tölvugerðarmyndir, meðal annars anime/manga vera ljótt. Annars er þetta allt sama ruglið.
hmmm nei. Krakkar sem lenda í einelti þjást oft síðar af félagsfælni sem er MJÖG hindrandi í lífinu, auk þess sem ákveðin hæfni til að eignast vini veikist við það að verða lagður í einelti og sjálfsálitið lækkar.
Reyndar í flestum tilvikum er AD-HD bara afsökun fyrir slæmt uppeldi, frændur mínir eru lifandi sannanir um það, móðir þeirra notar læknisfræðileg heiti til að afsaka allt sem þeir gera. Jújú, sumir eru örugglega í alvöru með þetta og þurfa lyf, en í svona 97% tilfella er þetta bara hrein og tær afsökun fyrir hressan óþekkan krakka sem foreldrar nenna ekki að ala upp.
vá … mér sem finnst mannabörn svo ólýsanlega leiðinleg, ljót, hárlaus, bleik/rauð, pirrandi, frek, skítug, slímug og lengi mætti telja. Gott að allir eru ekki sammála mér, þá myndi mannkynið deyja út.
já … veistu, þessi mynd heillar mig eiginlega ekki neitt :S tek það samt fram að mér finnst allt anime ljótt og hef aldrei nokkurn tíman verið hrifin af myndum sem eru gerðar í tölvu
hahah, veit reyndar ekki sjálf hvernig ég sá það út úr þessari mynd :P btw ég var ekki að skjóta á þig eða neitt með því að segja að olíulitir og olíupastel eru gjörólíkir :)
haha, olíulitir og olíupastel eru tveir gjörólíkir hlutir. annars hélt ég við fyrstu sýn að þetta væri svolítið sem ég ætla ekki að nefna hér. Bætt við 11. júní 2007 - 18:08 þ.e. myndin sjálf
bara út af því að mér leiðist þá: 1. Hver er uppáhalds bolurinn þinn? Bítlabolurinn minn sem er ónýtur núna .. svekk 2. en Peysa? uuuu … MR hettupeysan eða eitthvað svoleiðis 3. buxur/pils? svartar gallabuxur 4. Skór? gamlir converse skór sem eru að detta í sundur og ég er búin að teikna á 5. áttu þér til uppáhalds fatahönnuð? hahah, nei 6. málar þú þig á hverjum degi? nei 7. Mikið? hef aldrei málað mig mikið, aldrei prufað það 8. hvað er uppáhlds snyrtivörumerkið þitt? eitthvað sem er ekki...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..