Úff… ég hef prófað 42 hross, og ekkert eins… þannig að það er soldið erfitt að segja hver er bestur… Það eru samt auðvitað nokkrir sem standa uppúr, eins og Vængur, Stjarni og svo Sprengja. Þetta eru þó mjög ólík hross, og þó að Sprengja td sé ekkert með vinkillyftu þá er hún dúndurtöltari þegar hún nennir og vel sett. Vængur.. æ hann er bara Vængur, 17 vetra en heldur að hann sé 5…. Fasið og fótaburðurinn fyrirmyndar en skapið getur farið með hann stundum. Ég hef nú ekki farið mikið á bak...