Ichi the Killer - 2001 Leikstjóri: Takashi Miike Handrit: Sakichi Sato, Hideo Yamamoto Helstu hlutverk: Nao Omori, Tadanobu Asano Hróður Takashi Miike hefur svo sannarlega farið víða. Honum virðist hafa tekist að brjóta flesta þá siðferðis staðla sem við höfum, og slegið í gegn með myndum eins og Audition og Visitor Q. Hvoruga þessara mynda hef ég séð, ennþá. Ef þær eru eitthvað í líkingu við Ichi the Killer, þá gæti ég vel hugsað mér að láta reyna aðeins á viðbjóðstaugarnar í mér, eftir að...