Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

jubii
jubii Notandi frá fornöld 176 stig

Ferguson orðinn elliær? (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Samkvæmt Soccernet er Manure að ganga frá samningi við Laurent Blanc og hann verður orðinn leikmaður United fyrir kvöldið. Það virðast ekki vera góð skipti að skipta á varnarmanni í heimsklassa, sem Stam er og öðrum sem var einu sinni góður, en er það ekki lengur og kemst ekki í leikmannahópinn hjá Inter. Eina skýringin sem ég kem auga á er að Ferguson og Blanc hafi verið saman í bekk í gamla daga og þeir ætli sér að spila eitt tímabil saman áður en þeir fara báðir á elliheimilið.

Árni Johnsen (0 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Loksins! Árni Johnsen hefur löngum verið álitlegur kostur í valinu á lélegasta þingmanni Íslandssögunnar, en með nýjasta útspili sínu tryggir hann sig endanlega í sessi, sem sá allra lélegasti. Hann er búinn að hegða sér eins og smákrakki sem er búinn að gera í buxurnar og þrætir fyrir það, þó allir finni lyktina. Hann er búinn að segja af sér sem formaður bygginganefndar og það hlýtur aðeins að vera spurning um hve margir klukkutímar líða þangað til að hann verður látinn segja af sér...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok