Loksins! Árni Johnsen hefur löngum verið álitlegur kostur í valinu á lélegasta þingmanni Íslandssögunnar, en með nýjasta útspili sínu tryggir hann sig endanlega í sessi, sem sá allra lélegasti. Hann er búinn að hegða sér eins og smákrakki sem er búinn að gera í buxurnar og þrætir fyrir það, þó allir finni lyktina. Hann er búinn að segja af sér sem formaður bygginganefndar og það hlýtur aðeins að vera spurning um hve margir klukkutímar líða þangað til að hann verður látinn segja af sér þingmennsku líka. Ég segi nú ekki annað en, hvílík landhreinsun. Verst að Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur að hagnast á þessu!