Samkvæmt Soccernet er Manure að ganga frá samningi við Laurent Blanc og hann verður orðinn leikmaður United fyrir kvöldið. Það virðast ekki vera góð skipti að skipta á varnarmanni í heimsklassa, sem Stam er og öðrum sem var einu sinni góður, en er það ekki lengur og kemst ekki í leikmannahópinn hjá Inter. Eina skýringin sem ég kem auga á er að Ferguson og Blanc hafi verið saman í bekk í gamla daga og þeir ætli sér að spila eitt tímabil saman áður en þeir fara báðir á elliheimilið.