Ok, ég gaf kettinum mínum róandi í gær kl.17:00, vegna þess að þetta voru fyrstu áramótin hennar, og það geri ég ekki aftur. Hún leit út eins og ég veit ekki hvað, innri augnalokin voru upp á mið augu, það var virkilega fríkí. Hún var náttúrulega orðinn svöng greyið því maður má ekki gefa þeim að borða neitt góðan tíma fyrir töfluna, það endaði þannig að um kl. 20:00 þá var henni gefinn smá rjómi. Hún mátti ekki af okkur sjá og var svo vesæl þar sem hún hálf veltist um, labbandi um á eftir...