Skrifaði undir 5 ára samning Manchester United hefur tilkynnt að búið sé að kaupa Gabriel Heinze frá Paris St Germain. Heildarkaupverð nemur 6.9 milljónum punda. Leikmaðurinn skrifaði undir 5 ára samning sem rennur út 30. júní 2009. “Ég er ótrúlega stoltur að hafa gengið til liðs við jafn frábært félag. Að ganga til liðs við Manchester United er mjög mikilvægt skref á knattspyrnuferli mínum og ég trúi því að ég geti uppfyllt þær miklu væntingar sem eru til staðar.” sagði hinn nýi leikmaður...