Ég hef ekki hugmynd hvaða bardagalistaklúbbar eru nálægt þér en ég myndi mæla með einhverri bardagalist sem bæði er hægt að keppa í og sem líkist alvöru slagsmálum sem mest, þ.e.a.s. þeirri sem hefur tiltölulega fáar reglur. Sem sagt, MMA (Mixed Martial Arts), boxing, Brazilian Jiu Jitsu, Júdó, Muay Thai/kickbox, wrestling, o.s.frv. Æfðu þig síðan meira í þeirri göfugu bardagalist að labba í burtu frá vandræðum. Það er ekki alltaf hægt, sérstaklega ef þú býrð í slæmu hverfi, en það er hægt...