Sælir gæsaskyttur Ég hef stundað skotveiði á gæsum öndum og rjúpum í bráðum 23 ár og hef jafnhliða skotist á náttstaði sem og í morgunflug til að sækja gæsir. Sú aðferð ásamt flestu því sem viðkemur veiðinni er alfarið komið undir veiðimanninum sjálfum, þ.e. siðferði og mannkostum. Ég hef séð ýmislegt í gegn um tíðina í hegðun og framkomu veiðimanna sem er ekki alltaf faglegt né fallegt. Ég get með engu móti fallist á að eitthvað ósiðlegt sé við veiðar á náttstað frekar en á túnum, það er...