Samkvæmt könnun sem gerð var varðandi klámráðstefnuna þá var vel flestum alveg sama eða á milli 60 og 70% aðspurðra. Minnir að þessi könnun hafi verið gerð einmitt af einhverjum fjölmiðli með 900 mann úrtaki, jafnskipt milli kynja. Ég er samt alveg fylgjandi því sem Steingrímur segir varðandi hert eftirlit með klámsíðum, þá sérstaklega þeim sem upprunnar eru hér á landi, því klám er nú eftir allt ólöglegt hér.