Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Karlmenn og bílar eq. disaster?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Þegar ég les þetta hjá þér þá er það fyrsta sem mér dettur í hug að hafa nóg bil á milli bíla í umferðinni. Það getur alltaf komið fyrir að konur/menn þurfi að nauðhemla og því verðumm við að passa að keyra ekki í rassgatinu á næsta bíl. Athugaðu að ég er ekkert að segja að þú hafir haft of stutt á milli bíla heldur aðeins að benda á þetta sem við verðum öll að passa. IceCat

Re: Karlmenn og bílar eq. disaster?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Kæri Steiny, alls ekki var ég að saka alla karlmenn um að vera svín…ef þú hefur lesið það út úr greininni minni þá er það ekki rétt. Ég vildi bara benda karlmönnunum hér á hugi.is/bilar á að aðrir hafa aðra reynslu af umferðinni og aðeins að minni karlmennina hér á að ekki eru allar konur hættulegir ökumenn. Það er í raun aðdáunarvert að 21 árs manneskja hafi aldrei lent í slysi eða sektaður, sjálf keyrði ég á með þriggja daga gamalt ökuskírteini en ekkert síðan (er að verða þrítug). IceCat

Re: Karlmenn og bílar eq. disaster?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ekki nema að Breiðholtið, Háskólinn og Miklabraut finnist einnig á Egilsstöðum :) Þessa grein hér skrifaði ég aðallega til að sýna aðra hlið á umferðinni þar sem hér skrifa mest strákar og gera grín að ökumannshæfileikum kvenna. Bara að sýna fram á að allir hafa ekki sömu reynslu úr umferðinni. Að mörgu leyti er ég sammála þér með einstaklingana en það er samt staðreynd að kynin keyra ekki eins. IceCat

Re: Karlmenn og bílar eq. disaster?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Reyndar hefur það breyst mjög mikið síðustu ár. Kvenkyns ökumönnum hefur fjölgað með hverju árinu á meðan karlkyns ökumenn hafa staðið í stað. Ég trúi því að innan fárra ára verði ca. jafnt hlutfall kynjanna í umferðinni. IceCat

Re: Karlmenn og bílar eq. disaster?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Hehe…það sem ég meinti með ofurbílum er að sumir ökumenn telja sig vera á ofurbílum þrátt fyrir hið gagnstæða og þenja þá bílana allmikið. Varðandi að keyra of hratt þá er t.d. fylgi ég alltaf umferð á þessum stærri götum eins og Miklubraut og Sæbraut hvort sem keyrt er á 60 eða 80. IceCat

Re: Karlmenn og bílar eq. disaster?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Eins og talað út úr mínum munni, allt rétt sem þú segir :) IceCat

Re: Karlmenn og bílar eq. disaster?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Já það er svolítið merkilegt með hægri réttinn. Ég bý einmitt í botnlanga þar sem eru fleiri botnlangar við aðalgötuna og gildir hægri rétturinn þar allstaðar. Það er undantekning ef stoppað er og því stoppa ég alltaf sjálf til að láta ekki keyra á mig. En hvort það er bundið sérstaklega við konur skal ég nú ekki fullyrða um, mér hefur sýnst hlutfallið milli kynja vera nokkuð jafnt hjá þeim sem ekki virða hægri réttinn. IceCat

Re: Karlmenn og bílar eq. disaster?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Enda þarftu ekkert að vera sammála mér. Ég skrifaði þessa grein til að lýsa minni eigin reynslu í umferðinni og að það séu ekki alltaf konur eða gamlir karlar með hatta sem valda slysum. Þeir sleggjudómar um að konur séu hræðilegir bílstjórar eru ekki sannir. Sumir karlmenn og sumar konur eru slæmir bílstjórar…einfalt ekki satt? IceCat

Re: Karlmenn og bílar eq. disaster?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég myndi nú ekki kalla þetta sleggjudóma, ég er eingöngu að tala um mína rauverulegu reynslu á götum Reykjavíkur. Allavega er ég ekki að fullyrða að allir karlmenn keyri eins og vitleysingar og konur séu öruggastar í umferðinni. Aftur á móti verð ég að kommenta á það sem þú segir, ef þú bætir inn “sumar/sumir” fyrir framan báðar setningarnar eiga þær svosem ágætlega við. IceCat

Re: Vandamal..

í Kettir fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Já þetta kemur mér ekki á óvart, læðurnar mínar taka mig í þurrt ra***** í CS. Ég held að þetta sé bara spurningin um að æfa sig betur ef ég væri þú. Þrátt fyrir þinn litla heila þá ættir þú að geta troðið smá þekkingu um CS þar inn í viðbót. Ef það gengur ekki, er spurningin náttla bara að stofna clan með kisu og athuga hvernig ykkur mun ganga á næsta Skjálfta. Ég get lánað þér læðurnar mínar *hvæs* og ég skal vera aðdáandi og grúpía nr. 1 ! Hvernig líst þér annars á það ?...

Re: Mitsubishi eigendur ath

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Er ekki allt annar öxull á Galant heldur en í Colt ? Er á Galant og nenni ekki að hlaupa út og athuga nema einhverjar líkur séu á að þetta sé það sama. IceCat

eaue skrifaði:

Ég hef ákveðið að gera alltaf það sem mér þykir réttast í kattauppeldi, og það er að hlýða kisa í einu og öllu
<h

Re: Galantinn orðin 2-time spyrnubíll!

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Sæll force. Munurinn á þínum bíl og mínum er útlitið, minn bíll er með útlitið fyrir árgerðir 1993-1997 en þinn er með útlitið frá árunum 1988-1992. Einnig finnst mér þetta lágt verð fyrir bílinn þinn ef hann hefur verið góður, ég skoðaði fullt af Galant 1992 árgerð áður en ég keypti þennan og fann engan á undir 300. þús. Svo náttla er þetta verð ekkert heilagt, hann var nú metin upphaflega á bílasölu á 550 þús. sem mér fannst of mikið og lækkaði niður í 490 þús. IceCat

eaue...

Re: Galantinn orðin 2-time spyrnubíll!

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Varð bara eitthvað hvekkt þarna, það er löngu búið. Jájá, ég er almenn áhugamanneskja um bíla og stæri mig t.d. af því að ég þekki hverja einustu gerð japanskra bíla sem eru á götunni í dag. Ég hef mjög gaman að því að ræða um bíla, kannski líka því ég er á bíl sem ég er mjög ánægð með og hrifin af. En svona tæknileg atriði læt ég mikið til eiga sig, það eru aðrir betri í því en ég :) IceCat

eaue skrifaði:

Ég hef ákveðið að gera alltaf það sem mér þykir réttast í...

Re: Galantinn orðin 2-time spyrnubíll!

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég var að lækka hann í verði, úr 550 þús. í 490 þús. Getur kíkt á hann á bilasolur.is er bæði á J.R. Bílasölunni og Litlu bílasölunni. Þar eru myndir, 1993 módel og keyrður rétt yfir 170 þús. Endilega kíktu :) IceCat

eaue skrifaði:

Ég hef ákveðið að gera alltaf það sem mér þykir réttast í kattauppeldi, og það er að hlýða kisa í einu og öllu
<h

Re: Galantinn orðin 2-time spyrnubíll!

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Já þú segir nokkuð, ég er bara ekki sjálf í þessum gír einhvern veginn en ég ætti kannski að fara að líta í kringum mig hehe. Ég trúi því að karlmennirnir hafi orðið hissa að sjá kvenmann taka þá í spyrnu :) IceCat

eaue skrifaði:

Ég hef ákveðið að gera alltaf það sem mér þykir réttast í kattauppeldi, og það er að hlýða kisa í einu og öllu
<h

Re: Galantinn orðin 2-time spyrnubíll!

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Hmmm…veistu það að ég hef ekki hugmynd um hvaða gerðir eru til af hverri línu. Ég veit að það er til 300, 500 og 700 lína, thats it. Það eru ekki allir með áhuga á bílum sem vita þetta. Annars ef það á bara að fleima mig fyrir að segja frá þessu þá hætti ég því bara hér og nú. IceCat

eaue skrifaði:

Ég hef ákveðið að gera alltaf það sem mér þykir réttast í kattauppeldi, og það er að hlýða kisa í einu og öllu
<h

Re: Snjór - Beinskiptur vs sjálfskiptur

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Enda voru þetta pjúra fordómar í mér, mér finnst betra að vera á sjálfskiptum bíl og á erfitt með að skilja þá sem eru á beinskiptum en þetta er náttla alltaf bara smekksatriði og engin niðurstaða fæst í þetta mál. IceCat

eaue skrifaði:

Ég hef ákveðið að gera alltaf það sem mér þykir réttast í kattauppeldi, og það er að hlýða kisa í einu og öllu
<h

Re: Galantinn orðin 2-time spyrnubíll!

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég veit ekki hvernig Bimmi þetta var, bara nýlegur af stærri gerðinni. Neinei…að sjálfsögðu hefur bíllinn ekki við öllum Bimmum en allavega þessum Bimma ! IceCat

eaue skrifaði:

Ég hef ákveðið að gera alltaf það sem mér þykir réttast í kattauppeldi, og það er að hlýða kisa í einu og öllu
<h

Re: Galantinn orðin 2-time spyrnubíll!

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Jújú…ég er montin af bílnum mínum, er það ekki margir? Það sem ég átti við kannski frekar er að þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég les/heyri svona setningu frá karlmanni en það er líka allt í lagi bara :) IceCat

eaue skrifaði:

Ég hef ákveðið að gera alltaf það sem mér þykir réttast í kattauppeldi, og það er að hlýða kisa í einu og öllu
<h

Re: Snjór - Beinskiptur vs sjálfskiptur

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Heyrðu já vá, lenti í 4 bíla árekstri fyrir nokkrum árum á gamalli Carinu sem ég átti (var í rétti) og á meðan ég var að finna mér nýjan bíl þá heimtaði ég sjálfskiptan bíl á bílaleigu á kostnað tryggingafélagsins og fékk Corollu 1300 gamla í viku, þvílík hörmung. Ég þurfti nánast alla Reykjanesbrautina til að koma mér upp í 70 km/klst. IceCat

eaue skrifaði:

Ég hef ákveðið að gera alltaf það sem mér þykir réttast í kattauppeldi, og það er að hlýða kisa í einu og öllu
<h

Re: Galantinn orðin 2-time spyrnubíll!

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Þessi setning þín hljómaði fyrr mér sem svolítið mont en það er náttla bara smekksatriði :) Ég hef fulla trú á ökumannshæfileikum kallsins en hann kann náttla bara voða lítið á þennan bíl þar sem þetta er nú einu sinni frúarbíllinn. Sjálfur ekur hann um á Renault kassabíl með 1300 vél og fattar kannski ekki alveg hvað Galantinn er kraftmikill. Ég held ég leyfi honum bara að aka áfram um á kassabílnum, hann gerir ekkert svona á honum hahahah… IceCat

eaue skrifaði:

Ég...

Re: Galantinn orðin 2-time spyrnubíll!

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Það er nú allt í lagi að hreinsa öðru hvoru út úr pústinu, þetta var nú ekkert alvarlegt svosem. Voðalega er þetta eitthvað macho setning: “eina skiptið sem ég hef lent í spyrnu við Galant, var það bara Galantinn sem var að spyrna. Hann tapaði samt” Gaman að ykkur karlmönnunum! IceCat

eaue skrifaði:

Ég hef ákveðið að gera alltaf það sem mér þykir réttast í kattauppeldi, og það er að hlýða kisa í einu og öllu
<h

Re: Snjór - Beinskiptur vs sjálfskiptur

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Gaman að lesa viðbrögðin hjá ykkur :) Þetta með að beinskiptir bílar séu ennþá í boði fyrir almenning er náttla bara fordómar í mér. Sjálfskipting vs. beinskipting verður sjálfsagt alltaf bara smekksatriði…ég hef aldrei keyrt t.d. bíl með litla vél með sjálfskiptingu og hef engan áhuga á því svosem, ég kaupi aldrei bíla með minna en 2.0 l vél. IceCat

eaue skrifaði:

Ég hef ákveðið að gera alltaf það sem mér þykir réttast í kattauppeldi, og það er að hlýða kisa í einu...

Re: 57% bíla eldri en 1998 árgerð

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
hahaha…það er kannski rétt hjá þér að það að vera á MMC sé ekki mjög frumlegt :) En á móti kemur að afskaplega fáir bílar eru til af þessu looki (1993-1997) og því vekur bíllinn minn mikla athygli á vegum úti. Æji ég veit ekki með Benz og BMW, hér í götunni eru nokkrir (já ég bý í dýru einbýli) og þeir eru spólandi út um allt alveg eins og sleðar. Það er bara svo rosalega mikið orðið af þessum bílum, kannski sérstaklega BMW að ég er alveg hætt að taka eftir þeim. Ljótustu station bílar að...

Re: Kettir og nornir - ÁHUGAVERT

í Kettir fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Takk fyrir það :) Ég sendi inn búta og búta á nokkurra daga fresti einmitt til að fá ykkur til að kíkja reglulega híhí :) IceCat
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok