Fólk kemur oft með staðhæfingar sem eru úreldar og frekar hallærislegar, án þess að hugsa um hvað það er að segja. Eitt svona dæmi er þegar fólk segir að ungabörn brosi ekki…þetta sé bara vindgangur!!! Ok, þetta hljómar kannski rökrétt, því við getum jú ekki spurt börnin hvort þau séu að brosa af því þeim líður vel…þau skilja nefnilega ekki mælt mál, og þau hafa enga leið til að tjá tilfinningar með því t.d. að faðma mann því þessi grey hafa enga stjórn á útlimunum. Skoðum þetta aðeins...