Lykathea Aflame Ofur skemmtilegt proggað dauðarokksgrind með blómaáhrifum frá landi vonleysis og Pavel Nedved, Tékklandi. Sveitin gaf einungis frá sér eina plötu, Elvenefris, en hún fékk víðast hvar gríðarlegt lof bárujárnsunenda. Bandið lagði upp laupana fljótlega eftir þá plötu, eða réttara sagt breyttu um nafn og frontmaðurinn, Petr Tomanek, skipaði alveg nýtt liðaskipan. Bandið heitir í dag Lykathé. Gríðarlega gott efni, vandað og maður fær melódíurnar beint í æð....