Smá fróðleikur um seinni heimsstyrjöldina.. Oft var átökunum síðustu mánuði ársins 1939 líkt við “gervistríð”. Fyrst eftir að Pólland féll var lítið barist á landi. Öðru máli gegndi á höfunum. Þar var barist af slíkri hörku að svo virtist sem styrjöldin yrði bæði langvinn og mannskæð. Tæpum 10 klukkustundum eftir að Neville Chamberlain, forætisráðherra Breta, tilkynnti að styrjöld væri hafin, sökkti þýskur kafbátur breska farþegaskipinu Athenia. Af 1400 farþegum, sem margir hverjir voru að...