Nýtt átak.. :D Datt í hug að vera með í þessu átaki þar sem ég er soddan sápuóperu kvenmaður :)

Minn þáttur er sko nágrannar, og svo reyni ég stundum að fylgjast með glæstum vonum ef ég nenni að vakna svo snemma á laugardögum ;)

Allavega, það sem mér fannst alveg langátakanlegast í Neighbours var þegar hún Madge gamla dó, það er nú reyndar soldið langt síðan en mér fannst það ósköp sorglegt :(

Svo fannst mér ógeðslega fyndið og soldið vandræðalegt þegar Harold drakk sig blindfullan og sagði að Lou væri ekkert annað en bölvaður nýrnaþjófur.. það gerðist semsagt eftir að Harold fékk heilablóðfallið en það muna örugglega allir eftir því stutt síðan það gerðist..

Annars veit ég ekki hvað skal skrifa meira.. skítköst eru ekki vel þegin!