Fínasta mix hjá þér og alveg fínustu lög sem þú valdir í það. Þetta með skrjáfið, getur verið að jarðtengingu vanti eða er farin í sundur. Getur líka verið “leki” í sleðunum á mixernum. Þarf oft að þrýfa, sérstaklega ef einhverntímann hefur hellst eitthvað ofan á hann. Bjór og Kók þar sérstaklega slæmt. Getur líka verið sambandsleysi í tengjum og/eða lélegar snúrur. Möguleikarnir eru nokkrir, best að nota útilokunaraðferðina og króa þannig vandamálið betur af. gangi þér vel, kv, b.