Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hemmi1
hemmi1 Notandi frá fornöld 56 stig

Re: Kobe meiddur

í Körfubolti fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Svakalegt fyrir þá að missa út 3 af 4 aðalmönnum sínum. Hefði verið agalegt fyrir þá ef þetta hefði gerst seinna á tímabilinu, rétt fyrir úrslitakeppnina. Ég var annars búinn að vera að bíða eftir viðureign þeirra við Sacramento á föstudaginn, en ég held það muni nú varla gefa neina mynd af getu liðanna eins og staðan er núna í meiðslunum.

Re: Knicks og Suns skipta leikmönnum

í Körfubolti fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Held ég hafi einhversstaðar heyrt að ef lið er að endurnýja samning við leikmann sinn þá falli sú fjárhæð ekki undir launaþakið. Held það hafi komið inn á sama tíma og þessi free-agent regla, eftir verkfallið fyrir nokkrum árum. En ég er ekki viss, leiðréttið mig ef ég er að bulla…

Re: Lakers ströggla

í Körfubolti fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hlutirnir eru í augnablikinu að ganga upp fyrir Sacramentoaðdáanda, það er greinilega ekki hvaða lið sem er sem má við því að missa lykilmenn ;)

Re: Leikirnir í Nótt

í Körfubolti fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Jordan lét einmitt hafa eftir sér fyrir nýliðavalið 2001 að hann vildi nú frekar geta geymt fyrsta valréttinn en að velja úr þeim sem í boði voru þá. Annars voru þessi 23 stig sem Brown skoraði í gær career high hjá honum, ég sá leikinn og hann lék mjög vel í fyrsta leikhluta, en ég er alveg sammála um að þetta sé frekar döpur byrjun á ferli leikmanns sem er valinn fyrstur.

Re: Lakers að slaka á

í Körfubolti fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég sé ekki að Lakers séu eitthvað langbestir og alls ekkert víst að þeim takist að komast í gegnum Spurs, eða Sacramento sem er með jafngóðann árangur og þeir þó besta manninn þeirra vanti…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok