Jahá… nú finnst mér ég mega segja eitt og annað þar sem ég keppti þessa keppni. Dómararnir komu úr FB, MH og Verzló. Bragi Páll úr FB dæmdi FG 57 stiga sigur, Davíð Gill dæmdi FG 8-12 siga sigur (ég er ekki svo viss lengur) og Kári Finns dæmdi MR 117 stiga sigur. Ég ætla ekkert að tjá mig um rétt og rangt hérna, enda er það ekki mitt að dæma, en mér fannst MR-liðið bara nokkuð gott og þeir stóðu sig allir mjög vel, en það gerðum við líka, sama hvað nokkrir aðilar inni á þessu spjalli vilja...